föstudagur, mars 02, 2007
Bara rétt að láta heyra frá mér - sit á Kæjanum á Christianshavn og velti fyrir mér hvort vogandi sé að hætta sér út úr húsi. Maður getur átt von á að fá gusu af táragasi í andlitið eða stein í hausinn! Brjálæðið í borginni hefur verið algjört síðasta sólarhringinn, Á Christianshavn sem -að öllu jöfnu er hinn friðsælasti staður - var allt vitlaust í gærkvöldi.
Nú virðist vera ró yfir, krakkarnir eru sjálfsagt að sofa úr sér baráttu"rúsið" frá í gær og safna orku fyrir næstu atrennu. En eflaust heldur þetta áfram, þau hafa ekkert annað að gera og eru sjálfsagt ennþá voða "frustreruð" yfir að enginn vill gefa þeim hús.

Comments:
Manni finnst að þau ættu nú að nota orkuna í eitthvað annað. En þetta fólk á ekki skilið neitt hús til að hanga í! Það þyrfti þá að hafa rimla fyrir gluggum og góðan lás á hurðinni þannig að það komist ekki út. Þetta eru fornalda aðferðir sem þau nota og þá hlýtur löggjafinn að þurfa að koma fram við þau á sama máta. Puffff....Hummffff......
Kveðja, Hafdís.
Kveðja, Hafdís.
Árni Guðlaugs hefði sagt sð það væri betra að vera beggjamegin á flakki og fara sér að engu óðslega í þessum djöf...látum þarna í kóngsins Köb.Farðu varlega Svava mín.Það þyrfti að senda demonstranterana til sjós og taka úr þeim mesta gorgeirinn. Ætli myndi ekki lækka í þeim rostinn. Love
Skrifa ummæli